Unitor Cleanbreak 25 Ltr
Upplýsingar
- Olíuhreinsir / Sundrunarefni
Olíublendið hreinsiefni sem inniheldur sundrunarefni og er því hægt að nota efnið jafnt til almennra þrifa sem og til þess að auka skiljun á kjölvatni og úrgangsolíu.
Efnið hentar til allra almennra þrifa og þá sérstaklega á vélasvæði, þiljum og tankasvæði þar sem mikil olíumengun og óhreinindi eru til staðar og þörf er á áhrifaríku hreinsiefni.
Notið efnið óblandað og berið á með bursta og eða úðið efninu á flötinn, látið liggja á í 30 – 60 mínútur og skolið af með vatni. Notkun á heitu vatni og háþrýstiþvotti eykur virknina.
Til að auka skiljun, hellið efninu óblandað í kjölin og leyfið efninu að vinna áður en skiljun hefst.
Áhættugreining:
- Getur valdið lungnaskaða ef drukkið (H65)
- Viðvarandi snerting við húð getur valdið þurki og sprungni húð (H66)
- Er ekki hættulegt umhverfinu og er uppleysanlegt í vatni.
Öryggisgreining
- Ef efnið berst í augu, skolið strax með miklu vatni og leitið til læknis (V26)
- Forðist að anda að ykkur efninu (V23)
- Notið viðeiganndi hlífðarfatnað, hanska, gleraugu og andlitsvörn (V36/37/39)
- Geymið þar sem börn ná ekki til (V2)
Neyðarlinan; sjúkrabifreið, slökkvilið, lögregla: sími: 112
Eiturefnamiðstöð Landspítalans, Reykjavík: sími: 543-2222
Fylgiskjöl
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.