Unitor Gamazyme DPC 4 kg
Upplýsingar
Gamazyme DPC er lífrænt örveruduft sem er sérstaklega blandað til að vinna á lífrænum úrgangi í frárennsliskerfum og lögnum. Duftið er í uppleysanlegum pakkningum “koddum” sem gerir það mjög einfalt í notkun.
Gamazyme DPC er umhvefis og notendavænt kemur í staðinn fyrir notkun á mjög sterkum og eitruðum efnum sem eru bæði hættuleg notandanum og umhverfinu auk þess sem þau valda tjóni á lögnum og búnaði.
Gamazyme DPC er hægt að nota í allar frárennslislagnir og brunna, hvort sem um er að ræða klósettkerfi, frárennsli frá iðnaði eða almennar frárennslislagnir frá vöskum og sturtum.
Setjið 1 “kodda” í 10 lítra af volgu vatni (35°C) og látið standa í 15 mínútur og hrærið reglulega. Hellið síðan 0,5 – 1 lítra í hvert niðurfall einu sinni í viku til að viðhalda virkninni.
Áhættugreining:
- Er ertandi fyrir augu (H36)
Öryggisgreining
- Ef efnið berst í augu, skolið strax með miklu vatni og leitið til læknis (V26)
- Notið viðeiganndi hlífðarfatnað, hanska, gleraugu og andlitsvörn (V37/39)
- Geymið þar sem börn ná ekki til (V2)
Neyðarlinan; sjúkrabifreið, slökkvilið, lögregla: sími: 112
Eiturefnamiðstöð Landspítalans, Reykjavík: sími: 543-2222
Fylgiskjöl
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.