Gadinia S3 30 1000L
Upplýsingar
Strokk- og sveifarhússmurolía í afkastamiklumhraðgengum og meðalhraðgengum dieselvélum sem brenna gasolíu með allt að 1% brennisteins- innihaldi í eldsneytinu. Gadinia er mótorolía í mjög háum gæðaflokki, gerð úr völdum grunnolíum. Hún uppfyllir einnig ströngustu kröfur um gírolíur. Þannig hefur Gadinia einnig yfirburða eiginleika t.d. á niðurfærslugíra, skutpípur, loftþjöppur, margar gerðir vökvakerfa, þilfarsvélbúnað, forþjöppur og skiptiskrúfur. Bætiefni olíunnar veita öfluga vörn gegn tæringu af völdum saltvatns sem kann að komast í olíuna eða sýru sem myndast við bruna. Sérstök bætiefni tryggja mjög hreint sveifarhús og draga verulega úr útfellingum á stimpla og slífar, hindra slit t.d. á tannhjólum og í niðurfærslugírum, bætiefnin hindra einnig skúmmyndun, súrnun og efnaklofnun í olíunni.
Staðlar: API CD/CF, FGZ 12. Sulphated Ash 1,5% wt
Eiginleikar
- Gæðastaðlar: Sjá vörulýsingu og tækniblað.
 - TBN: 12
 - SAE: 30
 - cSt 40°C: 104
 - cSt 100°C: 11,8
 - Seigjutala: 103
 - Blossamark °C: 210
 - Rennslismark: -21
 
Fylgiskjöl
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

                                
                                
                                
                                
                                
                                
                                
                                
                                
                                
              
        
          Tækniblað