Gadinia S3 40 20L *Sérpöntun
Upplýsingar
Strokk- og sveifarhússmurolía í afkastamiklum hraðgengum og meðalhraðgengum dieselvélum sem brenna gasolíu með allt að 1% brennisteins- innihaldi í eldsneytinu. Gadinia er mótorolía í mjög háum gæðaflokki, gerð úr völdum grunnolíum. Hún uppfyllir einnig ströngustu kröfur um gírolíur. Þannig hefur Gadinia einnig yfirburða eiginleika t.d. á niðurfærslugíra, skutpípur, loftþjöppur, margar gerðir vökvakerfa, þilfarsvélbúnað, forþjöppur og skiptiskrúfur. Bætiefni olíunnar veita öfluga vörn gegn tæringu af völdum saltvatns sem kann að komast í olíuna eða sýru sem myndast við bruna. Sérstök bætiefni tryggja mjög hreint sveifarhús og draga verulega úr útfellingum á stimpla og slífar, hindra slit t.d. á tannhjólum og í niðurfærslugírum, bætiefnin hindra einnig skúmmyndun, súrnun og efnaklofnun í olíunni.
Sökum þess að vara þessi er dagsetningarmerkt með frekar stutta fyrningu að þá er þetta ekki almenn lagervara hjá okkur og þarf því að sérpanta.
Staðlar: API CD/CF, FGZ 12. Sulphated Ash 1,5% wt
Eiginleikar
- Gæðastaðlar: Sjá vörulýsingu og tækniblað.
- TBN: 12
- SAE: 40
- cSt 40°C: 128
- cSt 100°C: 13,7
- Seigjutala: 103
- Blossamark °C: 230
- Rennslismark: -21
Fylgiskjöl
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.