Tellus S4 VX 32 20L Carbon Neutral
This product is not available in the selected currency.
Til á lager
Forpöntun
Uppselt
Upplýsingar
(Hét áður Tellus Arctic) Sérhæfð vökvakerfisolía í flokki HV. Þessi vökvakerfisolía er ætluð í kulda og þar sem miklar sveiflur eru í umhverfishitastigi. Hún er mjög hitaþolin og er því jafnvíg vetrar- og heilsársolía. Hún er vaxlaus og hætta á froststíflum í síum þess vegna í lágmarki. Tellus S4 VX 32 er efnabætt gegn súrnun, tæringu, sliti og skúmmyndun. Góðir viðnámseiginleikar. Tellus S4 VX hentar vel þegar tæki eru notuð í stuttan tíma í senn í miklum kulda. Ekki ætti að nota Shell Tellus S4 VX á kerfi sem vinna stöðugt og við mikinn vinnuhita. Olían er zinkfrí. Vinnusvið: -50°C - +75°C.
Eiginleikar
- Gæðastaðlar: Komatsu hydraulic (cold arctic -50 C til 35°C)Deitz Company. Sjá nánar tækniblað. ISO 4406: 21/19/16.
- ISO: 32
- cSt 40°C: 33,8
- cSt 100°C: 9,9
- Seigjutala: 300
- Blossamark °C: 100
- Rennslismark: -60
Fylgiskjöl
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.