Unitor Diesel Power Biocontrol 25LTR
Upplýsingar
Bakteríueyðir í díselolíu / Biocontrol
DieselPower Biocontrol er sérhæft efni til að vinna á bacterium og gróðri í eldsneytistönkum og eldsneytiskerfum.
Efnið er hægt að nota jafnt til að fyrirbyggja bakteríumyndun eða til að eyða bacterium í oliunni og lögnum.
Notið 0,2 lítra í tonnið til að fyrirbyggja mengun en 0,8 lítra til að eiga við mengun sem er til staðar og allt að 3 lítra í tonið ef lagnir og síur eru stýflaðar.
Nægilegt er að hella efninu í tankinn en best er að setja það þegar 1/3 af olíunni hefur verið settur á tankinn og fylla síðan upp með olíu en þannig fæst mjög góð blöndun.
Áhættugreining:
- Getur valdið lungnaskaða ef drukkið (H65)
- Viðvarandi snerting við húð getur valdið þurki og sprungni húð (H66)
- Eitrað vatnalífverujm, getur haft skaðleg langtímaáhrif á lífríki í vatni (H51/53)
Öryggisgreining
- Ef efnið berst í augu, skolið strax með miklu vatni og leitið til læknis (V26)
- Forðist að anda að ykkur efninu (V23)
- Notið viðeiganndi hlífðarfatnað, hanska, gleraugu og andlitsvörn (V36/37/39)
- Forðist losun í umhverfið (V61)
- Varist að framkalla uppköst eftir inntöku, leitið strax læknishjálpar (V62)
- Geymið þar sem börn ná ekki til (V2)
Neyðarlinan; sjúkrabifreið, slökkvilið, lögregla: sími: 112
Eiturefnamiðstöð Landspítalans, Reykjavík: sími: 543-2222
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.