Vænni olíuhreinsir - 1L

Vörunúmer: 81011022

magn: 12 STK

listaverð með VSK:

26.760 kr.
Verslun Skútuvogi: Til á lager
Netverslun: Til á lager

  • Einingastærð

Upplýsingar

Vænni er kröftugur olíuhreinsir fyrir yfirborð bíla, vinnuvéla og annarra ökutækja, auk þess sem hægt er að nota hann til að þrífa tjöru og önnur erfið óhreinindi af slitsterku yfirborði eins og á kerrum og öðrum tengivögnum.

Vænni olíuhreinsir inniheldur hvorki terpentínu né önnur rokgjörn lífræn leysiefni og er þvívænni við öndunarfæri en mörg önnur efni til sambærilegra nota.

Vænni inniheldur umhverfis- og heilsuvæn efnasambönd framleidd hérlendis úr innlendum hráefnum.

NOTKUN:

  1. Úðið efninu á blautt eða þurrt yfirborð og leyfið því að virka í a.m.k. 10 mínútur. Passið þó að efnið þorni ekki.
  1. Ef um mikil óhreinindi er að ræða er gott að nudda erfiða bletti meðklút eða mjúkum bursta á meðan efnið er að virka.
  1. Skolið vel af með vatni.

Betra er að þvo af laus óhreinindi fyrir þvott til að tryggja hámarks

virkni efnisins.

 

Olíuhreinsirinn, sem hlotið hefur Svansvottun, er framleiddur af sprotafyrirtækinu Gefn fyrir Skeljung. Hann er framleiddur með einstakri tækni Gefnar sem umbreytir úrgangi og útblæstri í umhverfisvænni efnavöru. Framleiðslan er innlend og úr innlendum úrgangshráefnum sem heldur kolefnisfótspori vörunnar í lágmarki og eru umbúðirnar úrendurvinnanlegu plasti. 

Eiginleikar

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK